Í dag er spáð norðlægri átt, 5 til 13 metrum á sekúndum en hvassari vindi suðaustantil.
Él verða á Norður- og Austurlandi en bjart með köflum annars staðar. Frost verður á bilinu 3 til 16 stig, kaldast inn til landsins.
Það dregur úr frosti á landinu í dag og bætir í ofankomu norðantil síðdegis. Slydda verður við norðurströndina fram undir kvöld en áfram verður þurrt sunnan- og vestanlands.
Á morgun verða 10 til 18 metrar á sekúndu og él en þurrt sunnan- og vestanlands. Heldur hægari vindur um kvöldið. Frost verður 0 til 9 stig, mildast við ströndina.