Átta mánaða barn greint með mislinga

Barnaspítali Hringsins hafði samband við sóttvarnalækni sunnudaginn 29. desember sl. vegna mislinga sem greindust hjá átta mánaða barni sem kom að utan daginn áður. Barnið hafði veikst erlendis á aðfangadag, fengið kvef og hita en fékk útbrot 28. desember og flaug þann dag ásamt foreldrum sínum frá Stokkhólmi til Íslands með Icelandair.

Þetta kemur fram á vef landlæknis. 

Þar segir, að barnið sé nú í heimaeinangrun og á batavegi.

„Haft hefur verið samband við þau flugfélög sem fluttu barnið og farþegar upplýstir um smithættu en hún er mest áður en útbrot koma fram en eftir það dvínar smithættan og gengur yfir á nokkrum dögum. Einkenni geta komið fram hjá smituðum 1-3 vikum eftir smit. Heilsugæslan í landinu hefur verið upplýst og er fólki ráðlagt að hafa samband við lækni í síma eða í gegnum https://www.heilsuvera.is/ ef grunur leikur á smiti af völdum mislinga,“ segir á vef embættisins. 

Frekari upplýsingar um mislinga má finna hér.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert