Heimsferðir aflýsa ferðum til Kína

Heimsferðir höfðu skipulagt tvær páskaferðir til Kína. Þeim hefur nú …
Heimsferðir höfðu skipulagt tvær páskaferðir til Kína. Þeim hefur nú verið aflýst. AFP

Heimsferðir hafa ákveðið að aflýsa tveimur ferðum til Kína sem skipulagðar höfðu verið fyrir apríl. Þetta kemur fram í tilkynningu sem farþegar Heimsferða fengu senda í dag.

„Okkur þykir það afar leitt en við teljum að það séu ekki forsendur fyrir því að fara á næstu mánuðum til Kína,“ segir í tilkynningu Heimsferða. Þá segir að stefnt sé að því að setja upp aðra páskaferð til Kína á næsta ári, sem eflaust fari í sölu í byrjun sumars.

„Allir farþegar geta fengið ferð sína endurgreidda eða fært greiðslur yfir á nýja bókun. Við vonum að þið finnið aðra ferð sem heillar ykkur og getið notið frísins á öðrum slóðum.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert