Ræða grænar lausnir á loftslagsmóti

Dæmi um umfjöllunarefni á loftslagsmótinu geta verið betri aðferðir við …
Dæmi um umfjöllunarefni á loftslagsmótinu geta verið betri aðferðir við flokkun, lágmörkun úrgangs, rafrænt bókhald, umhverfisstjórnun og ráðgjöf um fyrstu skref í átt að umhverfisvænni rekstri. Ljósmynd/Aðsend

Fyrirtæki og stofnanir munu hittast á svokölluðu loftslagsmóti 3. mars og ræða grænar lausnir í rekstri og starfsemi. 

Mótið fer þannig fram að þátttakendur skrá sig, setja fram áskoranir og óska eftir fjölbreyttum lausnum frá fyrirtækjum eða sprotum, eða skrá sig með þær lausnir sem viðkomandi fyrirtæki býður. Í framhaldinu gefst svo öllum tækifæri til að bóka stutta fundi með öðrum aðilum og ræða hvers kyns lausnir sem styðja við loftslags- og umhverfisvænni rekstur.

Dæmi um umfjöllunarefni geta verið betri aðferðir við flokkun, lágmörkun úrgangs, rafrænt bókhald, umhverfisstjórnun og ráðgjöf um fyrstu skref í átt að umhverfisvænni rekstri.

Mótið er haldið að fyrirmynd Nýsköpunarmóts sem fram fór sl. haust og heppnaðist einstaklega vel. Þar voru haldnir 240 fundir með 25 opinberum stofnunum og 71 fyrirtæki. Nýsköpunarmótið verður haldið öðru sinni í lok september.

Fram kemur í frétt Stjórnarráðsins að eftirfarandi fyrirtæki eða stofnanir ættu að skrá sig og taka þátt: 

  • Fyrirtæki/stofnanir sem leita lausna við áskorunum á sviði umhverfis- og loftslagsmála
  • Fyrirtæki/stofnanir með lausnir á sviði umhverfis- og loftslagsmála
  • Fyrirtæki/stofnanir í vöruþróun

Loftslagsmótið fer fram á Grand hóteli 3. mars milli klukkan 9-12. Nánari upplýsingar og skráningu má finna hér.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert