Davíð Stefánssyni öðrum ritstjóra Fréttablaðsins og Sunnu Karen Sigurþórsdóttur, öðrum ritstjóra vefmiðlanna hringbraut.is og frettabladid.is, hefur verið sagt upp störfum.
Greint var frá uppsögnunum á vef Fréttablaðsins.
Sunna hafði starfað um árabil á Fréttablaðinu en Davíð tók við sem annar ritstjóri þess í júní í fyrra.
Garðar Örn Úlfarsson og Ari Brynjólfsson hafa verið ráðnir fréttastjórar að Fréttablaðinu en Kristján Kormákur Guðjónsson verður einn ritstjóri frettabladid.is og hringbraut.is.