Háskólinn hættir tanngreiningum

„Þetta hefur ekki gengið eftir á því ári sem samningurinn …
„Þetta hefur ekki gengið eftir á því ári sem samningurinn hefur verið í gildi. Af þeirri ástæðu þótti háskólaráði rétt að endurnýja ekki umræddan verksamning við Útlendingastofnun.“ mbl.is/Ómar Óskarsson

Háskólaráð Íslands samþykkti einróma á fundi sínum 6. mars að endurnýja ekki verksamning sem verið hefur í gildi milli Háskóla Íslands og Útlendingastofnunar, sem snerist um kaup Útlendingastofnunar á þjónustu tannlæknadeildar skólans í málum þar sem vafi leikur á aldri einstaklinga sem sótt hafa um alþjóðlega vernd á Íslandi.

Þetta kemur fram í tilkynningu sem Háskóli Íslands sendi frá sér í dag.

Í tilkynningunni segir að á sama tíma og samningurinn var undirritaður 2019 hafi HÍ komið ábendingum til dómsmálaráðherra þess efnis að bókun barnaréttarnefndar Sameinuðu þjóðanna frá 16. nóvember 2017 kynni að gefa tilefni til þess að endurskoða lög um útlendinga nr. 80/2016, þar á meðal ákvæði um aldursgreiningar.

Í umræddri bókun SÞ segir meðal annars að ríki skuli notast við fjölþætt mat á líkamlegum og andlegum þroska barna, sem framkvæmt er af barnalæknum og öðrum sérfræðingum í þroska barna. Í sömu bókun kemur fram að ríki skuli forðast að notast við klínískar aldursgreiningar á tönnum.

Frá mótmælafundi Stúdentaráðs HÍ og No Borders Iceland gegn tanngreiningum.
Frá mótmælafundi Stúdentaráðs HÍ og No Borders Iceland gegn tanngreiningum. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Háskóli Íslands kom sömu sjónarmiðum á framfæri í skriflegum athugasemdum við þingmannafrumvarp um breytingu á lögum um útlendinga haustið 2019 og hafði háskólaráð væntingar til þess að brugðist yrði við athugasemdum með breytingum á reglum og verklagi Útlendingastofnunar.

Þetta hefur ekki gengið eftir á því ári sem samningurinn hefur verið í gildi. Af þeirri ástæðu þótti háskólaráði rétt að endurnýja ekki umræddan verksamning við Útlendingastofnun.“

https://www.mbl.is/frettir/innlent/2019/03/29/born_eiga_ad_njota_vafans/

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert