103 einstaklingar greindir

mbl.is/Hallur Már

Samhæfingarstöð almannavarna segir í tilkynningu að frá því í gærkvöldi hafi fimmtán tilfelli af veirunni sem veldur COVID-19-sjúkdóminum verið greind á sýkla- og veirufræðideild Landspítala.

Samtals hafi 103 einstaklingar verið greindir hér á landi. 80 smit tengjast ferðum erlendis en 23 eru innanlandssmit.

Fram kemur í tilkynningunni að uppruna flestra smita megi rekja til Norður-Ítalíu og skíðasvæða í Ölpunum en þrjú smit hafi greinst frá einstaklingum sem komu hingað frá Bandaríkjunum. Um 1.000 sýni hafi verið tekin í heild.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert