Efling samþykkti kjarasamning við ríki og borg

Samninganefndin samankomin í húsnæði ríkissáttasemjara í janúar.
Samninganefndin samankomin í húsnæði ríkissáttasemjara í janúar. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Félagsmenn Eflingar sem starfa hjá Reykjavíkurborg og ríki samþykktu kjarasamninga sem undirritaðir voru í byrjun mars. Greidd voru atkvæði í dag um samningana. 

Af þeim 777 sem greiddu atkvæði um Reykjavíkurborgarsamninginn sögðu 715 eða 92% já og 49 eða 6% sögðu nei. 13 eða 2% tóku ekki afstöðu. Alls voru 1.858 á kjörskrá og kjörsókn því 42%.

Af þeim 72 sem greiddu atkvæði um ríkissamninginn sögðu 69 eða 96% já og 2 eða 3% sögðu nei. 1 eða 1% tók ekki afstöðu. Alls voru 545 á kjörskrá og kjörsókn því 13%.

Atkvæðagreiðslan var rafræn og stóð frá hádegi mánudaginn 23. mars til hádegis í dag föstudaginn 27. mars. 

„Niðurstaðan felur í sér staðfestingu á því að mikilvægt skref hefur verið stigið í leiðréttingu lægstu launa. Stoltust er ég af að hafa tekið þátt í því að auka virðingu og kjör láglaunakvenna í sögulega vanmetnum störfum. Þessir samningar eru sannarlega eftirtektarvert innlegg í baráttu láglaunakvenna fyrir að vera metnar að verðleikum. Um leið vil ég taka fram að baráttan heldur áfram. Næsti slagur felst í því að ná samsvarandi samningum fyrir félaga okkar hjá hinum sveitarfélögunum. Svo höldum við áfram að ryðja brautina fyrir betra lífi fyrir okkar fólk.“ Þetta er haft eftir Sólveigu Önnu Jónsdóttur formanni Eflingar í tilkynningu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert