Opinberum starfsmönnum fækkað hlutfallslega

Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB.
Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB. mbl.is/​Hari

Opinberum starfsmönnum sem sinna meðal annars mikilvægri almannaþjónustu hefur fækkað hlutfallslega miðað við mannfjölda á undanförnum árum þrátt fyrir aukningu verkefna og breytta aldurssamsetningu þjóðarinnar.

Þetta sýnir úttekt BSRB á stöðugildum hjá ríki og sveitarfélögum. Í tilkynningu vegna málsins segir að á ellefu ára tímabili hafi stöðugildum hjá ríkinu fækkað um nærri 1.000 en fjölgaði um rúmlega 1.500 hjá sveitarfélögunum, meðal annars vegna flutnings málefna fatlaðs fólks frá ríki til sveitarfélaga árið 2011.

Þá segir að opinber störf hafi verið tæplega 36 þúsund talsins árið 2008 en tæplega 36.600 árið 2017, en nýrri upplýsingar um fjölda stöðugilda hafi ekki verið teknar saman hjá sveitarfélögunum. Þegar tölur Hagstofunnar sem nái til ársins 2019 eru skoðar sést að hlutfall opinberra starfa af fjölda heildarstarfa á Íslandi hefur staðið í stað.

Fjölgun opinberra starfsmanna nemi rúmlega 600 stöðugildum á tíu ára tímabili eða 1,5 prósent, en á sama tíma fjölgaði landsmönnum um 10,5 prósent og fjölgun á vinnumarkaði nam um 10 prósentum. Því er um hlutfallslega fækkun stöðugilda hjá ríki og sveitarfélögum að ræða.

„Ýmsir sem talað hafa fjálglega um fjölgun opinberra starfsmanna hafa vísað í tölur Hagstofunnar, og þá litið til þeirra sem starfa í opinberri stjórnsýslu, fræðslustarfsemi og heilbrigðis- og félagsþjónustu. Sé rýnt í þær tölur má sjá að hlutfall opinberra starfa af fjölda heildarstarfa á Íslandi hefur staðið í stað frá 2008 til 2019 og verið um 29 prósent. Enn fremur tekur BSRB undir með Hagstofunni um að þessar tölur varpi ekki skýru ljósi á fjölda starfa hjá hinu opinbera. Ástæðan er sú að í þessum hópum að finna bæði fólk sem starfar í opinbera geiranum og fólk sem starfar á almenna vinnumarkaðnum og engin leið að skilja þar á milli.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert