Samtök ferðaþjónustunnar fordæma afstöðu ASÍ

Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar.
Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar. mbl.is/Kristinn Magnússon

Samtök ferðaþjónustunnar (SAF) fordæma afstöðu ASÍ sem hefur hafnað málaleitan Samtaka atvinnulífsins um að leita leiða til að draga tímabundið úr launakostnaði fyrirtækja. Ákvörðun ASÍ er sögð vinna gegn markmiðum aðgerða stjórnvalda um að styðja við atvinnulíf og að gera fyrirtækjum eins og kostur er kleift að halda ráðningarsambandi við starfsfólks.

Frá þessu er greint í tilkynningu þar sem segir að ASÍ vilji þannig hvorki ljá máls á frestun launahækkana né tímabundinni lækkun mótframlags í lífeyrissjóði. Óraunhæft sé fyrir ferðaþjónustufyrirtæki að uppfylla launahækkanir nema með uppsögnum.

„Óformlegar viðræður við ASÍ um þetta hafa staðið yfir um nokkurra vikna skeið án árangurs og formlegt erindi var sent frá SA til ASÍ þann 30. mars. Því erindi hefur nú verið svarað neitandi. Samtök ferðaþjónustunnar fordæma þessa afstöðu enda verður neitun ASÍ ekki skilin á annan hátt en að verkalýðshreyfingin skorist undan ábyrgð sinni og hyggist ekki leggjast á árarnar með stjórnvöldum og atvinnulífinu á neinn hátt í þeirri lífsbaráttu sem íslensk ferðaþjónusta og efnahagslíf í heild stendur frammi fyrir næstu mánuði og ár,“ kemur fram í tilkynningunni.

Þar segir enn fremur að ekki sé lengur hægt að treysta á að ASÍ sýni ábyrgð í þeim grafalvarlegu aðstæðum sem samfélagið glími nú við sem heild, ólíkt því sem áður var. Afstaða ASÍ muni óhjákvæmilega leiða til verri fjárhagsstöðu fyrirtækja í ferðaþjónustu sem nú glími við lamandi aðstæður með fullkomnu tekjutapi framundan um margra mánaða skeið og gríðarlegum lausafjárskorti.

„Það er óskiljanlegt með öllu hvernig forysta ASÍ getur komist að þeirri niðurstöðu að tekjulaus fyrirtæki geti uppfyllt launahækkanir á tímum sem þessum. SAF benda á að mjög stór hluti þeirra umsókna um 25 þúsund umsóknir um hlutaatvinnuleysisbætur sem borist höfðu vinnumálastofunun í gær voru frá ferðaþjónustufyrirtækjum og starfsfólki þeirra, sem sýnir svart á hvítu hve alvarleg staðan er í greininni,“ segir í tilkynningu SAF.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert