Íslendingur verði ekki framseldur til Rússlands

Hinrika Sandra Ingimundardóttir, lögfræðingur í dómsmálaráðuneytinu, Dr. Tobias Fuchs, ráðgjafi …
Hinrika Sandra Ingimundardóttir, lögfræðingur í dómsmálaráðuneytinu, Dr. Tobias Fuchs, ráðgjafi og Jóhanna Bryndís Bjarnadóttir, sendifulltrúi í utanríkisráðuneytinu. Á myndina vantar Gunnlaug Geirsson, lögfræðing í dómsmálaráðuneytinu. Ljósmynd/Stjórnarráðið

Evrópudómstóllinn í Lúxemborg kvað í gær upp forúrskurð í máli sem er til meðferðar hjá Hæstarétti Króatíu og varðar íslenskan ríkisborgara og framsalsbeiðni rússneskra stjórnvalda á hendur honum.

Í tilkynningu Stjórnarráðsins vegna málsins segir að maðurinn sé jafnframt með rússneskt ríkisfang og að forúrskurðurinn sé í samræmi við málflutning íslenskra stjórnvalda í málinu.

Maðurinn var handtekinn á landamærum Slóveníu og Króatíu í júní í fyrra þegar hann var í fríi með fjölskyldu sinni. Við landamæraeftirlit á ytri landamærum Schengen-svæðisins kom í ljós að hann var eftirlýstur af Interpol að beiðni rússneskra stjórnvalda og var maðurinn því handtekinn og hefur setið í varðhaldi í Króatíu síðan.

Hæstiréttur Króatíu fékk beiðni rússneskra stjórnvalda um framsal mannsins til meðferðar og óskaði eftir forúrskurði Evrópudómstólsins um túlkun og samspil ESB-löggjafar við EES-samninginn í málinu. Málið fékk flýtimeðferð fyrir Evrópudómstólnum og fór munnlegur málflutningur fram í Lúxemborg 31. janúar og tóku Íslensk stjórnvöld þátt í málflutningnum.

Íslenskum stjórnvöldum verði gefinn kostur á að óska eftir afhendingu mannsins

Dómstóllinn komst að þeirri niðurstöðu að óheimilt væri að framselja íslenskan ríkisborgara til þriðja ríkis án þess að sannreyna að hann mundi ekki sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu í þriðja ríki. Í þessu máli bæri við það mat að líta til þeirrar staðreyndar að maðurinn hefði áður en hann öðlaðist íslenskan ríkisborgararétt, fengið alþjóðlega vernd hér á landi á grundvelli útlendingalaga.

Til viðbótar taldi dómstóllinn að kæmust króatísk stjórnvöld að því að framsal væri heimilt til Rússlands bæri þeim áður en framsal færi fram að gefa íslenskum stjórnvöldum kost á að óska eftir afhendingu mannsins til Íslands að ákveðnum skilyrðum uppfylltum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert