Eins og víða um land hefur björgunarsveitarfólk í Björgunarfélagi Árborgar á Selfossi staðið í ströngu í dag, og raunar frá því klukkan 22 í gærkvöld. Margar götur í bænum eru ófærar en kraftar sveitarinnar hafa að miklu leyti farið í að flytja heilbrigðisstarfsfólk til og frá vinnu, segir Elvar Már Ölversson, varaformaður Björgunarfélags Árborgar, í samtali við mbl.is.
„Það hafa verið hópar að störfum frá klukkan tíu í gærkvöldi og eru enn þá að,“ segir Elvar og bætir við: „Það eru fjögur tæki á ferðinni. Búin að vera í allan dag. Jeppar og snjóbíll.“ Spurður um verkefni dagsins segir hann: „Aðallega hefur þetta verið að koma heilbrigðisstarfsfólki, og einnig lögreglumönnum, til og frá vinnu. Svo hafa verið sjúkraflutningar fyrir Heilbrigðisstofnun Suðurlands.“
Aðspurður segir Elvar að verkefni dagsins hafi gengið ótrúlega vel. „Það kemur sér vel að það eru fáir á ferðinni,“ segir hann en segir svo kíminn, í ljósi þess að nóg hefur verið að gera hjá sveitinni: „En það eru samt ótrúlega margir. Það er alveg nóg að gera.“
Segist hann enn fremur sjá fram á að talsvert verði að gera hjá sveitinni fram á kvöld. „Það eru náttúrlega vaktaskipti á sjúkrahúsinu aftur í kvöld og það er ekkert búið að ryðja af viti. Enn þá er kolófært víða og síðan lítið skyggni.“