Andlát: Gissur Sigurðsson

mbl.is

Gissur Sigurðsson fréttamaður lést á Landspítalanum sl. laugardag, 5. apríl. Gissur fæddist 7. desember 1947 í Hraungerði í Flóa. Foreldrar hans voru Stefanía Gissurardóttir og séra Sigurður Pálsson vígslubiskup og var Gissur næstyngstur sjö systkina. Níu ára gamall flutti Gissur með fjölskyldu sinni á Selfoss og átti þar heima fram undir tvítugt.

Á unglingsárum starfaði Gissur við hin ýmsu störf til sjós og lands, stundaði flugnám og aflaði sér réttinda sem einkaflugmaður.

Hinn 1. október 1970 hóf Gissur störf sem blaðamaður á Alþýðublaðinu og starfaði þar í tæplega fjögur ár. Var svo um skeið ritstjóri Sjávarfrétta, en kom til starfa á Dagblaðinu í byrjun árs 1976. Gissur varð fréttamaður á Ríkisútvarpinu árið 1981 og gat sér þar orð meðal annars fyrir mannlífs- og sjávarútvegsfréttir. Hann færði sig svo yfir á Bylgjuna 1997 og starfaði þar fram á síðasta ár. Sagði þar morgun- og hádegisfréttir í um aldarfjórðung. Vakti þar eftirtekt og naut hylli fyrir skemmtilega pistla og frásagnargleði í morgunþættinum Í býtið.

Til hliðar við fréttamennskuna kom meðal annars að gerð fræðslu og kynningarefnis. Þá  brá leikaranum Gissuri fyrir sem vofu Hauks Morthens söngvara í myndinni Úr öskunni í eldinn sem sýnd var í sjónvarpi árið 2000.

Gissur lætur eftir sig fjögur börn sem eru Guðbjörg útgefandi, Gissur Páll söngvari, Jón Grétar, kvikmynda- og þáttagerðarmaður, Hrafnhildur, myndlistarmaður og sýningarstjóri. Fósturdóttir Gissurar er Helga Auðardóttir sálfræðingur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert