Smitum fjölgaði um 24

Ljósmynd/Landspítali/Þorkell

Staðfest­um kór­ónu­veiru­smit­um fjölgaði um 24 síðastliðinn sól­ar­hring og er heild­ar­fjöldi staðfestra smita því orðinn 1.586. Einn hinna smituðu er yfir 100 ára gamall. 

Þetta kemur fram á covid.is. 

Alls voru 235 sýni tek­in hjá sýkla- og veiru­fræðideild Land­spít­al­ans og 877 hjá Íslenskri erfðagrein­ingu. Já­kvæð sýni voru 23 hjá Land­spít­al­an­um og 1 hjá Íslenskri erfðagrein­ingu.

71% þeirra sem greind­ust voru í sótt­kví. 39 liggja á spít­ala, þar af 13 á gjör­gæslu. Sex eru lát­in.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert