„Þetta er í fyrsta sinn sem sett er fram opinber stefna í þessum mikilvæga málaflokki hér á landi og löngu tímabært“ segir Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra, en heilbrigðisráðuneytið hefur birt aðgerðaáætlun í þjónustu við fólk með heilabilun til ársins 2025.
Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins. Þar segir að aðgerðaáætlunin sé afrakstur stefnumótunarvinnu sem heilbrigðisráðherra fól Jóni Snædal öldrunarlækni að leiða og að vinnan hafi farið fram í víðtæku samráði við þjónustuveitendur, sjúklingahópinn og aðstandendur fólks með heilabilun.
Þá var horft til alþjóðlegra aðgerðaáætlana á borð við Global action plan on the public helath response to dementia 2017-2025 frá Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni; Evrópusamstarfs um Joint action on dementia og Norðurlandasamstarfs um heilabilun á vegum Nordens Välfärdscenter (NVC), auk þess sem hliðsjón er höfð af heilbrigðisstefnu til ársins 2030.
Áætlunin tekur til sex málefnasviða og í henni eru skilgreindar 48 aðgerðir sem hver um sig er með tiltekin mælanleg markmið og hefur nokkrum þessara aðgerða þegar verið hrint í framkvæmd, en málefnasviðin sex eru eftirfarandi:
Mótun stefnu á þessu sviði er í samræmi við ályktun Alþingis frá árinu 2017 þar sem heilbrigðisráðherra var falið að „móta stefnu í málefnum einstaklinga með heilabilun sem feli í sér vitundarvakningu og fræðslu til almennings og aðstandenda, aukna áherslu á öflun tölulegra upplýsinga, markvissar rannsóknir og átak til að auka gæði umönnunar fyrir ört stækkandi sjúklingahóp í samfélaginu“.