Landsréttur staðfestir gæsluvarðhald

Rann­sókn máls­ins miðar þokka­lega.
Rann­sókn máls­ins miðar þokka­lega. mbl.is/Hallur Már

Landsréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir karlmanni á sextugsaldri sem grunaður er um að hafa orðið sambýliskonu sinni að bana í Sandgerði í lok marsmánaðar.

Gæsluvarðhaldið var í héraðsdómi framlengt til 20. maí, að kröfu lögreglustjórans á Suðurnesjum. Úrskurðurinn var kærður til Landsréttar sem staðfesti hann eins og áður sagði.

Rann­sókn máls­ins miðar þokka­lega, sagði Ólaf­ur Helgi Kjart­ans­son, lög­reglu­stjóri á Suður­nesj­um, í sam­tali við mbl.is í gær.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert