Gæslan aðstoðaði áhöfn skútu í vanda

Áhöfnin á varðskipinu Þór kom seglskútunni til aðstoðar.
Áhöfnin á varðskipinu Þór kom seglskútunni til aðstoðar. Ljósmynd/Landhelgisgæslan

Áhöfnin á varðskipinu Þór fór í gærmorgun og aðstoðaði áhöfn seglskútu sem átti í vandræðum með að sigla inn til Reykjavíkur vegna slæms veðurs og hafði óskað eftir fylgd síðasta spölinn. Þór var í grenndinni og kom skömmu síðar að skútunni.

Samkvæmt tilkynningu frá Landhelgisgæslunni voru þrír um borð í skútunni, en stög í mastri voru skemmd sem og seglabúnaður eftir veðrið í gærmorgun þegar vindhraði fór yfir 40 hnúta á svæðinu.

Þór lónaði fram fyrir skútuna og var skipstjóri hennar beðinn um að halda sig í skjóli rétt aftan við varðskipið og fylgja því eftir. Fylgdinni lauk eftir rúmlega klukkustundar siglingu skammt suður af Engey. Þá hélt skútan til hafnar og skipstjórinn þakkaði kærlega fyrir aðstoðina.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert