Óvenjulegu skólaári hjá Framhaldsskólanum á Húsavík lauk með óvenjulegri útskrift. Meira að segja hópmyndin af útskriftarhópnum var óvenjuleg.
Ljósmyndarinn fór upp í kirkjuna til að geta tekið mynd af nemendunum með rétt bil á milli. Við brautskráningu í kirkjunni gátu aðeins verið nemendurnir nítján og tveir gestir með hverjum.
Aðrir urðu að samfagna þeim með því að fylgjast með beinni útsendingu á Facebook.