Flestir ánægðir með störf Katrínar

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra.
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra. mbl.is/Kristinn Magnússon

Af ráðherrum ríkisstjórnarinnar eru flestir ánægðir með störf Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra, en rúmlega 59% landsmanna eru ánægð með störf hennar. Þar á eftir    kemur Lilja Dögg Alfreðsdóttir, mennta-og menningarmálaráðherra, en nær 54% eru ánægð með störf hennar, en auk þess eru fæstir óánægðir með störf hennar.

Þetta kemur fram í nýjum Þjóðarpúlsi Gallup. 

Í þriðja og fjórða sæti eru Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og  nýsköpunarráðherra, og Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra, en um 46% eru ánægð með störf þeirra.

Á hæla þeim kemur Bjarni Benediktsson, fjármála-og  efnahagsráðherra, en nær 43% eru  ánægð með störf hans, þá Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu-og sveitarstjórnarráðherra, en nær 39% eru ánægð með störf hans, og Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra en um 37% eru ánægð með störf hennar, að því er segir í púlsinum.

Ríkisstjórn Íslands.
Ríkisstjórn Íslands. mbl.is/​Hari

Tæplega 35% eru ánægð með störf Guðmundar Inga Guðbrandssonar, umhverfis- og auðlindaráðherra, Ásmundar Einars Daðasonar, félags-og  barnamálaráðherra, og Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, utanríkis- og  þróunarsamvinnuráðherra, en aðeins rúmlega 10% eru ánægð með störf Kristjáns Þórs Júlíussonar, sjávarútvegs-og landbúnaðarráðherra.

Hvað varðar óánægju eru langflestir óánægðir með störf Kristjáns Þórs, eða nær 62%. 

Kristján Þór Júlíusson.
Kristján Þór Júlíusson. mbl.is/Hari

Rúmlega 35% eru óánægð með störf Áslaugar Örnu og Bjarna Benediktssonar, rúmlega 31%  með störf Guðmundar Inga, 28% eru óánægð með störf Guðlaugs Þórs, nær 27% með störf Ásmundar Einars og nær 26% með störf Svandísar og Sigurðar Inga.

Þær þrjár sem flestir eru ánægðir með eru einnig fæstir óánægðir með. Slétt 21% er óánægt með störf Katrínar, rúmlega 18% eru óánægð með störf Þórdísar Kolbrúnar og rúmlega 17% eru óánægð með störf Lilju Daggar, að því er fram kemur í Þjóðarpúlsi Gallup. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert