Ökumaður féll af dráttarvél í Hrísey um hádegisbil í dag. Orsök slyssins er talin vera sú að dráttarvélinni hafi verið ekið á trjádrumb sem var á veginum með þeim afleiðingum að hinn slasaði féll af dráttarvélinni og lenti undir henni. Frá þessu greinir lögreglan á Norðurlandi Eystra á facebooksíðu sinni.
„Svo heppilega vildi til að í eyjunni var læknir og var sjúkrabifreið ræst út. Hinn slasaði var fluttur með ferjunni í land og síðan fluttur með sjúkrabifreið á sjúkrahúsið á Akureyri. Ekki er vitað um líðan hins slasaða en talið er að meiðslin gætu verið meiri háttar,“ segir jafnframt í færslunni.
Talsverður erill hefur verið hjá lögreglunni í umdæminu frá því á hádegi í dag. Rétt eftir hádegi barst tilkynning um eld í húsi í Síðuhverfinu á Akureyri en í ljós kom að kviknað hafði í mat á pönnu sem hafði staðið á eldavélinni. Þegar lögreglu og slökkvilið bar að garði var engan eld að sjá en talsverður reykur var í íbúðinni og þurfti slökkvilið að reykræsta íbúðina. Tveir íbúar voru fluttir á sjúkrahúsið vegna gruns um reykeitrun.
Um klukkustund síðar var tilkynnt umferðaróhapp sem hafði orðið á gatnamótum Austursíðu og Bugðusíðu en þar var bifreið ekið í veg fyrir aðra bifreið. Loftpúðar höfðu sprungið út í annarri bifreiðinni. Í bifreiðunum voru tvær fjölskyldur, samtals níu manns. Meiðsl eru talin minni háttar og var önnur bifreiðin fjarlægð af vettvangi með dráttarbifreið.