Sprengjusveit kölluð út vegna sprengikúlu í Hafnarfirði

Frá aðgerðunum í gær.
Frá aðgerðunum í gær. Ljósmynd/Aðsend

Séraðgerða- og sprengjueyðingardeild Landhelgisgæslunnar var kölluð út að beiðni lögreglu að húsi í Hafnarfirði í gærdag vegna torkennilegs hlutar sem fannst við jarðvinnu á lóð húss í miðbænum. Við athugun sprengjusérfræðinga Landhelgisgæslunnar kom í ljós að um var að ræða 20 mm sprengikúlu úr seinna stríði sem var virk og nokkuð ryðguð, enda komin til ára sinna.

Sprengjusérfræðingarnir settu sprengjuna í sérstakt box ásamt sandi svo hægt væri að flytja hana til eyðingar. Að auki var jarðvegurinn við húsið grandskoðaður og skimaður með málmleitartæki til að ganga úr skugga um að þar leyndust ekki fleiri sprengjur, að því er fram kemur í tilkynningu.

Ljósmynd/Aðsend

Þegar búið var að gera sprengikúluna örugga til flutnings var ekið með hana að Stapafelli á Reykjanesskaga og henni eytt á svæði sem notað er til sprengjueyðingar.

Sprengjusérfræðingar Landhelgisgæslunnar hafa sinnt óvenju mörgum verkefnum þar sem hermunir úr seinna stríði finnast á víðavangi. Fyrir rúmri viku fann vegfarandi í hressingargöngu virka fallbyssukúlu á hinu svokallaða Patterson-svæði í Reykjanesbæ sem var í góðu ástandi miðað við aldur og var henni eytt af séraðgerðasveitinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert