Embætti héraðssaksóknara hefur ákært karlmann á sextugsaldri fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás en honum er gefið að sök að hafa slegið karlmann ítrekað með lóðbolta í höfuð og líkama.
Samkvæmt ákæru átti atvikið sér stað þegar sá sem fyrir árásinni varð sat í farþegasæti kyrrstæðrar leigubifreiðar.
Maðurinn hlaut grunnt sár á hnakka hægra megin.
Þolandinn krefst þess að hinn ákærði verði dæmdur til að greiða honum 1,5 milljónir króna auka vaxta í miskabætur.