Gulir og grænir sjúkrabílar, 25 talsins, munu prýða götur landsins síðar í sumar, af því er segir í Facebook-færslu Rauða krossins, sem rekur sjúkrabílaflota landsins.
Framleiðsla á bílunum er í fullum gangi og hefur svokallaðri Battenburg-merkingu verið komið fyrir á bílana, til þess að auka sýnileika þeirra enn frekar.
Síðar í sumar koma 25 nýir sjúkrabílar á götur landsins, en eins og kunnugt er á og rekur Rauði krossinn sjúkrabílaflota...
Posted by Rauði krossinn on Wednesday, 10 June 2020
Innrétting í bílunum er splunkuný og má vænta þess að um sé að ræða kærkomna viðbót fyrir starfsfólk á sviði sjúkraflutninga.