Danski flugherinn aðstoðar Gæsluna

Þyrlan er af gerðinni EH101 og verður með aðsetur á …
Þyrlan er af gerðinni EH101 og verður með aðsetur á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli. Ljósmynd/Landhelgisgæslan

Dönsk leitar- og björgunarþyrla frá danska flughernum kom til landsins í vikunni ásamt 13 manna starfsliði. Ástæðan fyrir komu dönsku björgunarþyrlunnar er að tryggja björgunargetu úr lofti, á og við Ísland, meðan hluti áhafna Landhelgisgæslunnar sækir þjálfun í flughermi í Frakklandi.

Þjálfunin átti að fara fram fyrr á árinu en frestaðist vegna kórónuveirufaraldursins. Danska þyrluáhöfnin verður þyrlusveit Landhelgisgæslunnar til halds og trausts hluta júlímánaðar og hrein viðbót við þyrlur Landhelgisgæslunnar sem munu eftir sem áður standa vaktina vegna leitar og björgunar á tímabilinu.

Leitað var til Dana svo tryggja mætti að ávallt væru tvær þyrlur auk tveggja áhafna til taks vegna loftrýmisgæslu og annarra verkefna hér við land á tímabilinu.

Danir tóku vel í beiðnina, sem undirstrikar einstakt samstarf þjóðanna á sviði leitar- og björgunarmála, segir Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar, í samtali við mbl.is.

Ómetanlegir samstarfsaðilar

Rúmt hálft ár er síðan Danir sendu hingað til lands Hercules-flutningavél sem flutti íslenska viðbragðsaðila og búnað vegna björgunarverkefna í kjölfar óveðurs á Norðurlandi í desember 2019.

„Það er ómetanlegt að eiga slíka samstarfsaðila og Landhelgisgæslan er afar þakklát fyrir velviljann sem Danir hafa sýnt þegar eftir aðstoð þeirra hefur verið leitað,“ bætir Ásgeir við.

Danska áhöfnin hefur fengið kynningu á helstu verkefnum Landhelgisgæslunnar þegar kemur að leit og björgun úr lofti.

Þyrlan sem hingað er komin er af gerðinni EH101 en hún og áhöfn hennar koma til með að hafa aðsetur á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli. Þyrlusveitin danska lenti á Reykjavíkurflugvelli í kvöld til að kanna aðstæður.

Ef til útkalls kemur verður danska þyrlusveitin kölluð út af stjórnstöð Landhelgisgæslunnar í Reykjavík. Gert er ráð fyrir að þyrlan verði hér á landi til 17. júlí og verður hún til taks hluta þess tímabils.

Þyrlusveitin danska lenti á Reykjavíkurflugvelli í kvöld til að kanna …
Þyrlusveitin danska lenti á Reykjavíkurflugvelli í kvöld til að kanna aðstæður. Ljósmynd/Landhelgisgæslan
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert