Óvenju mörg umferðaróhöpp á Suðurnesjum

mbl.is/Hjörtur

Óvenju mörg umferðaróhöpp hafa orðið í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum á  undanförnum dögum að því er fram kemur í tilkynningu frá embættinu.

Ökumaður sem ók inn á  hringtorgið við gatnamót Reykjanesbrautar og Þjóðbrautar hafnaði uppi á því og ók niður umferðarmerki með þeim afleiðingum að  bifreiðin valt á hliðina. Hann slapp án teljandi meiðsla.

Annar ökumaður ók aftan á bifreið á Njarðarbraut. Hann var grunaður um neyslu áfengis og fíkniefna.

„Þá þurfti að flytja karlmann á Landspítala í Fossvogi eftir að hann missti mótorhjól sitt úr af Nesvegi. Ekki er vitað um líðan hans. Nokkur umferðaróhöpp til viðbótar þessum urðu en engin alvarleg slys á fólki. Þá hafa nokkrir ökumenn verið kærðir fyrir hraðakstur, einkum á Reykjanesbraut,“ segir í fréttatilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert