Fjöldi eftirskjálfta — einn 3,3 að stærð

Um 80 eftirskjálftar hafa fylgt skjálftanum stóra frá því í …
Um 80 eftirskjálftar hafa fylgt skjálftanum stóra frá því í nótt. Ljósmynd/Veðurstofan

Eftir yfirferð sérfræðinga á Veðurstofu Íslands hefur stærð jarðskjálftans sem varð um 10 kíló­metra norðvest­ur af Gjög­ur­tá laust eft­ir klukk­an þrjú í nótt verið endurmetin sem 4,4, ekki 4,7, að stærð.

Þrátt fyrir það er enn um að ræða stærsta skjálftann sem mælst hefur á svæðinu frá 21. júní þegar skjálfti 5,8 að stærð mæld­ist.

Um 80 eftirskjálftar hafa fylgt í kjölfarið, einn þeirra að stærð 3,3 klukkan fimm mínútur yfir sjö í morgun.

Skjálftahrinan við mynni Eyjafjarðar hófst 19. júní og hefur sjálfvirka jarðskjálftakerfi Veðurstofunnar staðsett yfir 14.000 skjálfta síðan þá. Þrír skjálftar yfir 5 að stærð hafa mælst í hrinunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert