Alvarlegt umferðarslys varð á Norðausturvegi (vegur 85) í nótt að sögn lögreglunnar á Norðausturlandi. Slysið varð skammt frá Presthólum í Núpasveit en ekki er hægt að veita frekari upplýsingar um slysið að svo stöddu.
Núpasveit er á milli Öxarfjarðarnúps og Snartarstaðanúps, skammt frá Kópaskeri.
Uppfært klukkan 9:50
„Fólksbifreið lenti út fyrir veg og valt, skammt sunnan við gatnamót Hófaskarðsleiðar sunnan Kópaskers. Ökumaður var einn um borð í bifreiðinni. Vinna stendur enn yfir á vettvangi á tildrögum slyssins og því ekki hægt að veita frekari upplýsingar um atvikið að svo stöddu,“ segir í færslu lögreglunnar á Norðausturlandi á Facebook á tíunda tímanum í morgun.