Frá Val til Stjörnunnar

Hrafnhildur Anna Þorleifsdóttir gengur til liðs við Stjörnuna að yfirstandandi …
Hrafnhildur Anna Þorleifsdóttir gengur til liðs við Stjörnuna að yfirstandandi tímabili loknu. Ljósmynd/Stjarnan

Handknattleiksmarkvörðurinn Hrafnhildur Anna Þorleifsdóttir hefur samið við Stjörnuna um að leika með liðinu næstu tvö ár, til sumarsins 2026. Gengur hún til liðs við félagið í sumar.

Hrafnhildur Anna, sem er 24 ára gömul, hefur leikið með Val undanfarin tvö ár og varð Íslandsmeistari með liðinu á síðasta ári og bikar- og deildarmeistari á þessu ári.

Hún er alin upp hjá FH og hóf meistaraflokksferilinn þar.

,,Hrafnhildur Anna er góður leikmaður sem ég bind miklar vonir við.

Hún er með góða reynslu í markinu frá tíma hennar í FH og svo Val, ég hlakka til að fá hana í Garðabæinn,” sagði Patrekur Jóhannesson, þjálfari Stjörnunnar, í tilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert