Á þaki bílsins í tvær klukkustundir

Bíllinn fastur í ánni.
Bíllinn fastur í ánni. Ljósmynd/Slysavarnafélagið Landsbjörg

Björgunarsveitir frá Hellu og Hvolsvelli voru kallaðar út í morgun vegna ökumanns sem var í vandræðum í Kaldaklofskvísl við Hvanngil.

Hafði hann fest bíl sinn í ánni og þurft að koma sér upp á þak því vatn flæddi inn í bílinn, að því er segir í tilkynningu frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg.

Maðurinn var búinn að vera á þaki bílsins í um tvær klukkustundir þegar björgunarmenn komu að. Vel tókst að koma manninum í land en unnið er að því að koma bílnum úr ánni. Var hann farinn að grafast niður og mátti því ekki tæpara standa að bjarga manninum. 

Vegna rigninga hefur vaxið mikið í ám á hálendinu og eru margar þeirra því illfærar og jafnvel ófærar óbreyttum jeppum.

Ljósmynd/Slysavarnafélagið Landsbjörg
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert