Lögreglan á Suðurlandi varar við vatnavöxtum í ám á Syðra-Fjallabaki. Eftir rigningar undanfarna daga hefur vaxið mjög í ám á svæðinu sem eru nú um stund aðeins færar stærri jeppum.
Göngufólk er sérstaklega varað við því að reyna að vaða ár á svæðinu. Þessi viðvörun á m.a. við gönguleiðinni frá Landmannalaugum að Þórsmörk, að því er segir á facebooksíðu lögreglunnar.