Lýst eftir José M. Ferraz da Costa Almeida

José M. Ferraz da Costa Almeida.
José M. Ferraz da Costa Almeida. Ljósmynd/Lögreglan

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir José M. Ferraz da Costa Almeida, 41 árs portúgölskum ríkisborgara sem gengur undir nafninu Marco Costa.

Ef einhverjir þekkja til Marco Costa, sem er 183 sm á hæð, eða vita hvar hann er að finna, eru hinir sömu vinsamlegast beðnir um að hringja í lögregluna í síma 112, en upplýsingum má jafnframt koma á framfæri í tölvupósti á netfangið abending@lrh.is eða í einkaskilaboðum á Facebook-síðu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Marco Costa er jafnframt hvattur til að hafa samband við lögreglustöðina á Hverfisgötu 113-115 í Reykjavík.

Uppfært klukkan 20:26: Maðurinn er kominn í leitirnar og lögregla þakkar veita aðstoð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert