Lögregla og viðbragðsaðilar eru nú við vinnu á vettvangi alvarlegs bifhjólaslyss skammt vestan Stigár í Austur-Skaftafellssýslu.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurlandi, en slysið var tilkynnt neyðarlínu kl. 13.36.
Umferð er stýrt fram hjá vettvangi og má búast við töfum þar á meðan á vinnu stendur. Ekki er unnt að veita frekari upplýsingar um máli að svo stöddu, að sögn lögreglu.