„Það eru engin tengsl milli ASÍ og Kóps“

Nýtt stéttarfélag, Kópur, hefur verið auglýst og er auglýsingum einkum …
Nýtt stéttarfélag, Kópur, hefur verið auglýst og er auglýsingum einkum beint að Pólverjum sem starfa á Íslandi. Myndin er úr safni. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Drífa Snædal, forseti ASÍ, segir að Kópur, sem er nýtt stéttarfélag, sé ekki hluti af Alþýðusambandi Íslands og ekki aðili að neinum kjarasamningum, VIRK, Bjargi, orlofssjóðum, fræðslusjóðum eða sjúkrasjóðum. 

Þetta kemur fram í yfirlýsingu. 

Þar segir að nýja stéttarfélagið hafi verið auglýst og sé auglýsingum einkum beint að Pólverjum sem starfi á Íslandi.

„Í kynningu á félaginu er látið í veðri vaka að það hafi aðgang að öllum þeim gæðum og þjónustu við félagsmenn sem íslensk verkalýðshreyfing hefur byggt upp um áratuga skeið og jafnvel að félagið sé tengt Alþýðusambandi Íslands. Þetta er rangt,“ segir í yfirlýsingu frá Drífu.

Drífa Snædal, forseti ASÍ.
Drífa Snædal, forseti ASÍ. mbl.is/Árni Sæberg

„Það eru engin tengsl milli ASÍ og Kóps og okkur vitanlega hefur Kópur ekki gert neina kjarasamninga. Kópur er ekki með fræðslusjóð til að greiða menntun, er ekki með sjúkrasjóð fyrir þá sem verða veikir í lengri tíma, á ekki aðild að Bjargi íbúðafélagi sem býður lægri leigu og húsnæðisöryggi, er ekki aðili að VIRK starfsendurhæfingu og á ekki orlofshús. Mögulegir félagsmenn í Kópi myndu ekki njóta neinna ef þessum réttindum né hafa aðgang að lögfræðilegri og annarri faglegri aðstoð sem launafólki býðst almennt hjá sínum stéttarfélögum.

ASÍ hvetur til að þessum upplýsingum sé dreift sem víðast og komið í veg fyrir að launafólk afsali sér óafvitandi réttindum sem verkalýðshreyfingin hefur byggt upp um áratuga skeið,“ segir ennfremur. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert