Eykt með lægsta tilboðið

Frá framkvæmdum við Nýjan Landspítala.
Frá framkvæmdum við Nýjan Landspítala. Ljósmynd/NLSH

Tilboð hafa verið opnuð hjá Ríkiskaupum, í uppsteypu á nýju þjóðarsjúkrahúsi sem Nýr Landspítali ohf. bauð út fyrr á þessu ári.

Fimm fyrirtæki höfðu verið metin hæf, í forvali á þessu ári, til að bjóða í þessa stóru uppsteypuframkvæmd, þ.e. Eykt, Íslenskir aðalverktakar, Ístak, Rizzani De Eccher / Þingvangur og ÞG verktakar.

Kostnaðaráætlun verksins er 10.508.628.877 kr. (án vsk)

Tilboð bárust frá eftirtöldum fyrirtækjum:

Eykt 8.687.513.317 kr. (82,67%)

Íslenskir aðalverktakar 12.391.331.160 kr. (117,92%)

Ístak 10.372.866.483 kr. (98,71%)

Rizzani De Eccher S.P.A. og Þingvangur. 8.728.083.840 kr. (83,06%)

Um 70 þúsund fermetrar

„Þetta er stærsti áfanginn hjá okkur í Hringbrautarverkefninu til þessa. Jarðvegsframkvæmdir við grunn hússins hafa gengið vel og nú hefst nýr kafli sem er uppsteypa á þessu stóra húsi sem verður um 70 þús fermetrar. Áætlanir okkar eru þær að uppsteypan geti hafist þegar í nóvember þegar búið verður að ganga frá samningum um framkvæmdina. Framkvæmdatími verksins er um þrjú ár. Þessu verki hefur fylgt jákvæður hugur og við vonumst eftir þvi að þessi stóra framkvæmd muni ganga vel og stefnt er að að nýr spítali verði tekinn í notkun 2026,“ segir Gunnar Svavarsson, framkvæmdastjóri NLSH ohf. í tilkynningu.

Meðferðarkjarninn verður stærsta byggingin í Hringbrautarverkefninu,en í húsinu verður þungamiðjan í starfsemi Landspítalans. Gerðar hafa verið sambærilegar kröfur um aðbúnað í meðferðarkjarna og í nýjum háskólasjúkrahúsum í nágrannalöndum okkar. Meðferðarkjarninn er hugsaður út frá starfsemi bráða- og háskólasjúkrahúss, með áherslu á einfalt og skýrt fyrirkomulag ásamt greiðum leiðum milli starfseininga. Aðalhönnuðir hússins eru Corpus hópurinn en beitt er aðferðafræði notendastuddrar hönnunar þ.a. starfsmenn Landspítalans koma að hönnunarferlinu.

Tvö opin útboð eru nú í auglýsingu hjá Ríkiskaupum, bæði vegna vinnubúðasvæðisins. Annað snýst um jarðvinnu og veitnagerð á svæðinu og hitt um vinnubúðirnar sjálfar, kaup á gámum, en tilboðsfrestur er til 3. september.

Þá er í farvatninu forval vegna alútboðs á byggingu bílastæða- og tæknihúss og skammt undan er síðan jarðvinnuútboð vegna Rannsóknahússins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert