Ellefu ára drengur lést í Garðabæ

mbl.is

Ellefu ára drengur lést á heimili sínu í Garðabæ á þriðjudaginn. Lögreglan hefur lítið viljað tjá sig um málið, en hefur staðfest að ekkert bendi til þess að nokkuð saknæmt hafi átt sér stað. Segir lögreglan í tilkynningu að um mikinn harmleik sé að ræða.

Samkvæmt heimildum mbl.is er um að ræða dreng á tólfta ári og lést hann af völdum skotsárs á heimili sínu.

Tilkynning lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu vegna málsins er svohljóðandi:

Vegna umfjöllunar í fjölmiðlum um andlát barns í Garðabæ á þriðjudag vill Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu koma því á framfæri að um er að ræða mikinn harmleik, en ekkert bendir til þess að nokkuð saknæmt hafi átt sér stað.

Lögreglan mun ekki veita frekari upplýsingar um málið og biður jafnframt fjölmiðla að veita aðstandendum svigrúm til að syrgja á þessum erfiðu tímum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka