Í nótt voru unnin eignaspjöll á að minnsta kosti 18 bifreiðum í Reykjanesbæ, að því er fram kemur í Facebook-færslu lögreglunnar á Suðurnesjum.
Lögreglan óskar eftir vitnum.
Bifreiðunum var lagt við Hólabraut, Njarðargötu og Faxabraut. Í öllum tilvikum voru hliðarspeglar brotnir af.
Löreglan biður þá sem urðu vitni að eða hafa upplýsingum um verknaðinn að hafa samband við lögreglu.