Veirusmit í Lundarskóla á Akureyri

Lundarskóli er lengst til hægri á myndinni.
Lundarskóli er lengst til hægri á myndinni. mbl.is/Þorgeir

Covid-19 smit hefur verið staðfest hjá starfsmanni í Lundarskóla við Dalsbraut á Akureyri.

Að kröfu sóttvarnalæknis og til að gæta fyllsta öryggis þurfa nemendur í 1. til 6. bekk að vera heima meðan á smitrakningu stendur eða að öllu óbreyttu til fimmtudagsins 1. október.

Lundarskóli við Dalsbraut verður því lokaður næstu daga, að því er segir í tilkynningu.

Starfsmaðurinn sem um ræðir hafði ekki verið í snertingu eða samskiptum við nemendur frá því hann var útsettur fyrir smiti og því er fyrst og fremst um varúðarráðstöfun að ræða.

Skólastarf 7.-10. bekkjar Lundarskóla, sem fer fram annars staðar í bænum, raskast ekki og heldur áfram óbreytt.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert