3 samningar í höfn og fleiri á leiðinni

AFP

Evrópusambandið hefur gert samning við lyfjafyrirtækið Janssen Pharmaceutica NV, dótturfyrirtæki Johnson Johnson, um kaup á bóluefni gegn COVID-19. Samningurinn felur í sér að strax og prófunum er lokið og niðurstöður sýna að bóluefnið er öruggt og með fullnægjandi virkni er aðildarríkjum sambandsins tryggður réttur til kaupa á bóluefni fyrir 200 milljónir manna. 

Eins og áður hefur komið fram munu Ísland og önnur aðildarríki Evrópska efnahagssvæðisins njóta sama aðgangs að bóluefnum sem Evrópusambandið semur um og önnur ríki sambandsins. Þetta kemur fram á vef Stjórnarráðsins.

Samningurinn við Janssen er þriðji samningurinn sem Evrópusambandið gerir við lyfjafyrirtæki um kaup á bóluefni við COVID-19. Áður var búið að semja við fyrirtækið AstraZeneca og Sanofi-GSK. Evrópusambandið á einnig í viðræðum við þrjú önnur fyrirtæki um bóluefnakaup; CureVac, BioNTech-Pfizer og Moderna.

Samningurinn við Janssen felur einnig í sér heimild til kaupa á bóluefnum fyrir allt að 200 milljónir manna til viðbótar. Horft er til þess að aðildarríkin geti lagt lágtekjuríkjum til bóluefni, auk heimildar til að framselja bóluefni til annarra Evrópuríkja, segir í fréttatilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert