Herdís nýr framkvæmdastjóri Skálholts

Herdis Friðriksdóttir nýr framkvæmdastjóri Skálholts
Herdis Friðriksdóttir nýr framkvæmdastjóri Skálholts Ljósmynd/Aðsend

Herdis Friðriksdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Skálholts. Herdís er skógfræðingur að mennt auk MPM gráðu í verkefnastjórnun.

Stjórn Skálholts auglýsti á dögunum eftir framkvæmdastjóra félagsins. Alls bárust 20 umsóknir um stöðuna.

Frá 2017 hefur Herdís rekið eigið fyrirtæki, Understand Iceland sem framkvæmdastjóri. Understand Iceland sérhæfir sig í fræðsluferðum fyrir háskólanemendur og fróðleiksfúsa Norður-Ameríkana.

Þar á undan starfaði Herdís sem verkefnastjóri Sesseljuhúss, umhverfisseturs á Sólheimum og fyrr sem sérfræðingur hjá Orkuveitu Reykjavíkur. Herdís er gift Einari Á. E. Sæmundsen þjóðgarðsverði þjóðgarðsins á Þingvöllum. Þau eiga saman tvær dætur; Guðnýju Helgu (f. 2002) og Þórhildi Júlíu (f. 2004). Herdís og Einar eru sveitungar Skálholtsstaðar og búa með fjölskyldu sinni í Reykholti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka