Prófa Dýrafjarðargöngin

Dýrafjörður. Beinn og breiður vegur liggur frá göngunum og út …
Dýrafjörður. Beinn og breiður vegur liggur frá göngunum og út með firði. Ljósmynd/Framkv.eftirlit Dýrafjarðarganga

Fyrsta daginn sem Dýrafjarðargöng voru opin fyrir almenna umferð, síðastliðinn sunnudag, fóru 827 ökutæki um þau, samkvæmt teljara Vegagerðarinnar. Átt er við ferðir því öruggt má telja að margir hafi farið fram og til baka og jafnvel oftar en það.

Samsvarar þessi umferð fimm til sex sinnum daglegri meðalumferð um Hrafnseyrarheiði, fjallveginn sem göngin leysa af hólmi.

Dýrafjarðargöng voru opnuð við athöfn sl. sunnudag. Friðleifur Ingi Brynjarsson, verkefnastjóri í umferðardeild Vegagerðarinnar, segir að búast megi við því að margir hafi farið um göngin á sunnudag fyrir forvitni sakir. Jafnvægi komist ekki á fyrr en eftir einhverja daga og jafnvel vikur og þá sé hægt að meta áhrif þeirra á umferð, að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert