Stormur, snjókoma og ófærð

Kort/Veðurstofa Íslands

Skil kröftugrar lægðar ganga á land í kvöld og bera með sér það sem kalla mætti þokkalegt vetrarveður með suðaustan stormi, snjókomu  eða slyddu sem spillir færð og skyggni á vegum. Veðurstofan hefur gefið út gular viðvaranir á sjö spásvæðum og gilda þær bæði í dag og á morgun.

„Í dag hvessir af suðaustri og þykknar upp, fyrst um landið vestanvert. Í kvöld má búast við að vindstyrkur verði kominn víða upp undir stormstyrk (20 m/s). Dálítil óvissa er hve hratt hlýnar en það hefur mikil áhrif á hvaða úrkomutegund verður á láglendi.

Líklegast er að úrkoman byrji sem snjókoma eða slydda en færist síðan yfir í rigningu á láglendi. Mestu hlýindin verða samt ekki fyrr en eftir miðnætti og fram undir morgun, en þá snýst vindur jafnframt til suðvestanáttar. Hún verður ekki eins hvöss og úrkomumikil eins og veðrið verður í nótt, en um og eftir hádegi á morgun er útlit fyrir að vindur verði víða 15-20 m/s og hvassari í éljum og þá hefur einnig kólnað talsvert frá morgninum.

Á fjallvegum, einkum á vestanverðu landinu verður ekki eins hlýtt svo að bæði má reikna með að úrkoma fari seinna yfir í rigningu í kvöld eða nótt og eins kólnar fyrr þar á morgun svo að öll úrkoma fellur þar sem él á morgun.

Föstudagurinn verður líklega keimlíkur morgundeginum en fer þó að lægja undir kvöld.
Æskilegt er að fólk ani ekki út í óvissuna því útlit er á að élin verði bæði dimm og mjög hvöss,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands.

Veðurstofan hefur því gefið út gular viðvaranir vegna veðurs fyrir sjö spásvæði og má segja að þær komi í tveimur lotum. Fyrstu viðvaranir taka gildi um klukkan 19 í kvöld, miðvikudag þegar skilin  ganga á land. Nýjar viðvaranir taka svo gildi á hádegi á morgun, fimmtudag, þar sem varað er við suðvestan átt, 15-25 m/s með mjög litlu skyggni í éljum og því eru akstursskilyrði varasöm.

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins beinir því til íbúa á höfuðborgarsvæðinu að ganga vel frá lausum hlutum en von er á vonskuveðri er líður á daginn.

Á höfuðborgarsvæðinu tekur gul viðvörun gildi klukkan 20 í kvöld og gildir til klukkan 1 í nótt. „Suðaustan 13-23 m/s, hvassast á Kjalanesi. Snjókoma og skafrenningur og ört versnandi færð á götum og vegum, ekki síst í efri byggðum.“

Á hádegi á morgun tekur síðan önnur viðvörun við á höfuðborgarsvæðinu og gildir til miðnættis. „Suðvestan 15-23 m/s og mjög dimm él. Hálka á götum og gangstéttum og skyggni mjög takmarkað á köflum, sem getur valdið vandræðum í umferðinni.“

Á Suðurlandi tekur viðvörunin gildi klukkan 19 og gildir til klukkan 5 í fyrramálið. „Suðaustan 15-23 m/s og slydda eða snjókoma á Hellisheiði og í Þrengslum. Færð getur spillst snögglega.“

Seinni viðvörunin tekur gildi á hádegi á morgun á Suðurlandi og gildir til miðnættis. „Suðvestan 15-23 m/s með éljagangi. Mjög lítið skyggni í éljum og því varasöm akstursskilyrði.“

Við Faxaflóa gildir viðvörunin á sama tímabili, það er frá klukkan 19 til klukkan 5. „Suðaustan 15-23 m/s með snjókomu eða slyddu, einkum á fjallvegum á Snæfellsnesi þar sem færð getur spillst snögglega.“

Þar gildir einnig gul viðvörun frá hádegi á morgun til miðnættis. „Suðvestan 15-23 m/s með éljagangi. Mjög lítið skyggni í éljum og því varasöm akstursskilyrði.“

Við Breiðafjörð er viðvörun í gildi frá klukkan 19-5 í fyrramálið. „Suðaustan 15-23 m/s og snjókoma eða slydda, einkum á fjallvegum. Varasöm eða erfið akstursskilyrði.“

Á morgun er gul viðvörun í gildi frá klukkan 12 til miðnættis við Breiðafjörð. „Búist er við suðvestan 18-25 m/s og talsverðum eða miklum éljagangi. Búast má við takmörkuðu skyggni og ört versnandi akstursskilyrðum. Einnig má búast við miklu hvassviðri í éljahryðujunum.“

Á Vestfjörðum er gul viðvörun í gildi frá klukkan 19 til 6 í fyrramálið. Suðaustan 15-23 m/s með snjókomu og skafrenningi, einkum á fjallvegum um Suðurfirði. Varasöm eða erfið akstursskilyrði.

Á morgun er spáin þessi fyrir Vestfirði: „Búist er við suðvestan 18-25 og talsverðum eað miklum éljagangi. Búast má við takmörkuðu skyggni og ört versnandi akstursskilyrðum. Einnig má búast við miklu hvassviðri í éljahryðjum.“

Strandir og Norðurland vestra frá klukkan 21 í kvöld þangað til 8 í fyrramálið er gul viðvörun í gildi. „Suðaustan 15-23 m/s og snjókoma eða skafrenningur, einkum á Ströndum og á Holtavörðuheiði og Laxárdalsheiði. Ört versnandi akstursskilyrði.“

Ný viðvörun tekur þar gildi klukkan 12 á hádegi á morgun og gildir hún til miðnættis. „Búist er við suðvestan 18-25 og talsverðum eða miklum éljagangi. Búast má við takmörkuðu skyggni og ört versnandi akstursskilyrðum. Einnig má búast við miklu hvassviðri í éljahryðjum.“

Á miðhálendinu er gul viðvörun frá klukkan 20 í kvöld og þangað til 10 í fyrramálið. „Suðaustan og síðar sunnan 18-25 m/s og snjókoma eða skafrenningur. Ekkert ferðaveður.“
Kort/Veðurstofa Íslands

Verðurspáin fyrir næstu daga

Norðlæg átt, 3-10 m/s og dálítil él N- og A-lands, en annars bjartviðri. Frost 0 til 7 stig, en víða frostlaust við ströndina. Vaxandi suðaustanátt í dag og þykknar upp, fyrst um landið vestanvert, 15-23 m/s og slydda eða snjókoma þar undir kvöld, en rigning á láglendi um miðnætti. Dálítil slydda eða rigning SA-lands, en þurrt að kalla NA-til. Rigning um mest allt land í nótt og hiti víða 2 til 8 stig.

Suðvestan 15-23 á morgun, en hægari fyrst í fyrramálið. Skúrir og síðar él og kólnar, vægt frost síðdegis en hiti 0 til 4 stig við ströndina. Yfirleitt þurrt NA- og A-lands.

Á fimmtudag:

Suðvestan 15-23 m/s með éljagangi S- og V-til og hiti nálægt frostmarki, en frostlaust við ströndina.

Á föstudag:

Suðvestan 13-20 m/s og éljagangur, en bjartviðri NA-lands, hvassast við S- og V-ströndina. Hiti kringum frostmark.

Á laugardag:
Hægt minnkandi suðvestanátt og él, en bjartviðri eystra. Hiti um og undir frostmarki.

Á sunnudag:

Hæg suðlæg eða breytileg átt og skýjað með köflum, en dálítil snjókoma syðst og vestast. Fremur kalt í veðri.

Á mánudag:
Vaxandi austanátt með slyddu eða rigningu á S-verðu landinu og hlýnandi veður.

Á þriðjudag (fullveldisdagurinn): Líkur á mildri suðlægari átt með vætu en NA-átt með snjókomu NV-til seinnipartinn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert