Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og embætti landlæknis boða til upplýsingafundar klukkan 11:00 í dag.
Rögnvaldur Ólafsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn mun stýra fundi en gestir verða Regína Ásvaldsdóttir, sviðstjóri Velferðarsviðs Reykjavíkurborgar og Unnur Sverrisdóttir, forstjóri Vinnumálastofnunar.
Á fundinum verður farið yfir áherslur til ákveðinna hópa í tengslum við Covid-19 faraldurinn hér á landi.