Óskar gestur fundarins

Óskar Reykdalsson, forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.
Óskar Reykdalsson, forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Ljósmynd/Lögreglan

Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og embætti landlæknis boða til upplýsingafundar klukkan 11:00 í dag.

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir og Rögnvaldur Ólafsson aðstoðaryfirlögregluþjónn fara yfir stöðu mála varðandi framgang Covid-19-faraldursins hér á landi.

Gestur fundarins verður Óskar Reykdalsson, forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert