Alvotech reisir stórhýsi í Vatnsmýrinni

Höfuðstöðvar Alvotech í Vatnsmýri.
Höfuðstöðvar Alvotech í Vatnsmýri. mbl.is/Kristinn Magnússon

Í borgarkerfinu er nú til meðferðar umsókn um leyfi til að byggja viðbyggingu, fjórar hæðir og kjallara, steinsteypta, einangraða og klædda glerklæðningu, við hátæknisetur Alvotech á lóð við Sæmundargötu. Hið nýja hús verður samtals 13.286 fermetrar. PK arkitektar eru aðalhönnuðir.

Málið var tekið fyrir á fundi skipulagsfulltrúa Reykjavíkur sl. föstudag og gerir hann ekki skipulagslegar athugasemdir við erindið að öðru leyti en því að breyta þarf bílastæðum í götu, að því er fram kemur í Morgunblaðinu í  dag.

Núverandi bygging Alvotech á Sæmundargötu 15-19 í Vatnsmýrinni var reist árið 2016 og er tæplega 13 þúsund fermetrar að stærð. Brunabótamat samkvæmt fasteignaskrá er rúmir 4,2 milljarðar króna. Húsið er hluti af Vísindagörðum Háskóla Íslands. Viðbyggingin mun rísa sunnan við núverandi hús.

Vegna vaxandi umsvifa stefnir lyfjaþróunarfyrirtækið Alvotech á að fjölga starfsmönnum í höfuðstöðvum félagsins í Vatnsmýri á næstu misserum, að því er fram kom í frétt hér í blaðinu í september sl. Hjá fyrirtækinu starfa nú um 500 vísindamenn og sérfræðingar frá 45 þjóðlöndum, á Íslandi, í Þýskalandi, Sviss og í Bandaríkjunum.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert