Allir viðbragðsaðilar á Seyðisfirði í sýnatöku

Viðbragðsaðilar fóru í sýnatöku nú í morgunsárið.
Viðbragðsaðilar fóru í sýnatöku nú í morgunsárið. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Allir viðbragðsaðilar og fjölmiðlamenn sem komu til Seyðisfjarðar annars staðar að af landinu voru sendir í sýnatöku fyrir kórónuveirunni í morgun. Ákvörðun um þetta var tekin til að koma í veg fyrir að smit bærist austur með fólki úr öðrum fjórðungum, en ekkert virkt kórónuveirusmit hefur verið á Austurlandi um nokkurt skeið.

Að sögn blaðamanns mbl.is á vettvangi streymdi björgunarsveitarfólk hvaðanæva af landinu austur á Seyðisfjörð eftir að ósköpin dundu þar yfir. Er ljóst var að ekki yrði um mannbjörg að ræða heldur eingöngu rústa- og verðmætabjörgun hafi mörgum hins vegar verið snúið við.

Björgunarsveitarmenn bíða eftir að komast í sýnatöku.
Björgunarsveitarmenn bíða eftir að komast í sýnatöku. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Nákvæmur fjöldi viðbragðsaðila sem er nú á Seyðisfirði liggur ekki fyrir, en Jóhann K. Jóhannsson, samskiptastjóri almannavarna, segist í samtali við mbl.is telja að þeir skipti tugum. Sóttvarnir séu í hávegum hafðar og því hafi verið tekin ákvörðun um að senda fólk í sýnatöku.

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir sagði í samtali við mbl.is í gær að ástandið á Seyðisfirði kallaði á ríkar sóttvarnaráðstafanir enda hefði óhjákvæmilega þurft að brjóta þar ýmsar grundvallarsóttvarnaráðstafanir.

Ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvort íbúum verður hleypt inn í bæinn í dag. Almannavarnir og lögregla funda með sérfræðingum frá Veðurstofu Íslands nú klukkan níu og að svo búnu verður tilkynnt um framhaldið, sem gæti verið upp úr hádegi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert