Bóluefnið komið til Íslands

Það dugar ekkert minna en sérsveit ríkislögreglustjóra þegar um jafnverðmætan …
Það dugar ekkert minna en sérsveit ríkislögreglustjóra þegar um jafnverðmætan farm er að ræða. Ljósmynd/Lögreglan

Flugvélin með bóluefni við kórónuveirunni er lent á Keflavíkurflugvelli. Vélin lagði af stað frá Amsterdam í Hollandi rétt rúmlega sjö í morgun og er með 10 þúsund skammta af bóluefni lyfjaframleiðandans Pfizer um borð.

Um leið og vélin lendir verður bóluefninu komið í vöruhús fyrirtækisins Distica í Garðabæ sem annast dreifingu þess hér innanlands. Þar verða viðstödd Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra, Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir, Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn og Alma Möller landlæknir.

„Þar verður bóluefnið þó ekki geymt í langan tíma enda er fyrirhugað að hefja bólusetningu strax á morgun,“ segir Jóhann K. Jóhannsson, upplýsingafulltrúi almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra, við mbl.is. 

Starfsmenn í framlínustörfum á Landspítalanum verða bólusettir á morgun með viðhöfn og sömuleiðis fólk á hjúkrunarheimilum.

„Það er búið að skipu­leggja þetta allt sam­an. Við för­um eft­ir for­gangs­röðun embætt­is land­lækn­is, fyrst er fólkið inni á hjúkr­un­ar­heim­il­un­um og ákveðnir fram­lín­u­starfs­menn,“ sagði Óskar Reykdalsson, framkvæmdastjóri Heilsugæslunnar á höfuðborgarsvæðinu, við mbl.is í gær.

Biðin eftir bóluefni er á enda.
Biðin eftir bóluefni er á enda. Ljósmynd/Almannavarnir
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert