Kynjaverur kvöddu jólin í Reykjanesbæ

Púkar og aðrar kynjaverur sáust á vappi á bílastæðum á …
Púkar og aðrar kynjaverur sáust á vappi á bílastæðum á meðan Suðurnesjamenn fylgust með flugeldasýningu og bílaútvarpstónleikum úr bílum sínum. mbl.is/Svanhildur Eiríksdóttir

Þrettándagleðin í Reykjanesbæ í kvöld var með öðru sniði í ár en fyrri ár en gleði engu að síður við völd.
Fólk var hvatt til að vera í bílum sínum á merktum bílastæðum og hlusta á Ingó veðurguð keyra upp stemmninguna eins og honum einum er lagið á FM 106.1.
Sjá mátti púka á vappi á milli bíla sem mættu til þessa að skjóta fólki skelk í bringu. Þeir spjölluðu líka við börnin sem mörg hver kusu að vera á vappi kringum íþróttasvæðið í Njarðvík þar sem annað bílastæðið var.
Björgunarsveitin Suðurnes lauk svo þrettándagleðinni með veglegri flugeldasýningu sem íbúar þökkuðu fyrir með bílflauti.

Flugeldasýningin í Reykjanesbæ í kvöld sást víða.
Flugeldasýningin í Reykjanesbæ í kvöld sást víða. mbl.is/Svanhildur Eiríksdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert