Nýtt grasæfingasvæði í Úlfarsárdal

Nýtt grasæfingasvæði í Úlfarsárdal.
Nýtt grasæfingasvæði í Úlfarsárdal. Tölvuteikning aðsend

Nýtt grasæfingasvæði fyrir knattspyrnuiðkun verður útbúið á íþróttasvæði Fram í Úlfarsárdal. Verða þar tveir æfingavellir.

Borgarráð heimilaði á fundi sínum í gær umhverfis- og skipulagssvipi að bjóða út framkvæmdir við grasæfingasvæðið á íþróttasvæði Fram í Úlfarsárdal. 

Æfingavellirnir tveir verða með vökvunarkerfi og verður svæðið girt með þar til gerðum girðingum með inngöngu og aksturshliðum sem henta knattspyrnuvöllum er því sem kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg.

Kostnaðaráætlun framkvæmdanna hljóðar upp á 250 milljónir. 

„Ráðast þarf í jarðvegsskipti á svæðinu og tryggja gott affall regnvatns á völlunum. Ofan á vellina kemur ákveðið jöfnunarlag með þjöppun og þar á ofan sáningarlag.

Sáð verður fyrir grasi á æfingasvæðunum en utan valla verður sáð úthagagrasi auk þess sem trjám og runnum verður plantað í gróðurási við vellina til að fegra svæðið og mynda skjól,“ segir í tilkynningu frá Reykjavíkurborg.

  

Staðsetning nýs grasæfingasvæðis í Úlfarsárdal.
Staðsetning nýs grasæfingasvæðis í Úlfarsárdal. Mynd/Aðsend
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert