56 launakröfur upp á 46 milljónir króna

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, flytur ræðu á baráttufundi.
Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, flytur ræðu á baráttufundi. mbl.is/Hari

Alls voru 186 ný mál skráð á kjaramálasviði Eflingar á fjórða ársfjórðungi nýliðins árs, að því er fram kemur í nýútkominni ársfjórðungsskýrslu sviðsins.

Af heildarfjölda mála eru 56 launkröfur upp á ríflega 46 milljónir króna. Fimm eða fleiri opnar launakröfur liggja hjá tveimur fyrirtækjum upp á samtals um 17 milljónir króna, samkvæmt tilkynningu Eflingar.

„Misvel gengur að innheimta kröfurnar og berst stéttarfélagið fyrir því að stjórnvöld efni loforð sitt um sektarheimild „févíti“ í því skyni að bæta árangur innheimtunnar. Af heildarfjölda launakrafna voru 15 kröfur í þrotabú upp á 17,3 mkr.,“ segir í einnig í tilkynningunni.

Af hátt í 25.000 greiðandi félögum í Eflingu voru um 54% af erlendum uppruna í nóvember. Hlutfall félagsmanna af erlendum uppruna sem leituðu til kjaramálasviðs nam 64% á ársfjórðungnum. Mörg mál tengjast greiðslu uppsagnarfrests og kemur það heim og saman við að af 3.711 atvinnulausum félögum í Eflingu voru 75% af erlendum uppruna og 25% af íslenskum uppruna í október síðastliðnum.

Atvinnuleysi meðal Eflingarfélaga var á þessum tíma nokkuð hærra en annars staðar á vinnumarkaði. Atvinnuleysi meðal Íslendinga var 10,6% en atvinnuleysi meðal erlendra ríkisborgara 24% í nóvember samkvæmt tölum Vinnumálastofnunar. Atvinnuleysi kemur því harðar niður á erlendum einstaklingum á vinnumarkaði en íslenskum. Enn harðar kemur atvinnuleysið niður á erlendu verka- og láglaunafólki en öðrum hópum erlendra starfsmanna á vinnumarkaði.

„Við þjónustu erlendra félagsmanna kemur sér vel að Efling býr yfir fjölda starfsmanna af ólíkum uppruna og með mikla tungumálakunnáttu. Meðal tungumála sem töluð eru reiprennandi í starfsmannahópnum má nefna ensku, pólsku, litháísku, lettnesku, rússnesku, mandarín kínversku og spænsku,“ segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert