Könnun á líðan starfsfólks í fyrirtækjum

Frá vinstri: Svanhildur Hólm Valsdóttir, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs, Þórey Vilhjálmsdóttir, stofnandi …
Frá vinstri: Svanhildur Hólm Valsdóttir, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs, Þórey Vilhjálmsdóttir, stofnandi og meðeigandi Empower, Þorgerður Einarsdóttir, prófessor í kynjafræði við Háskóla Íslands og Ólafur Elínarsson, sviðsstjóri markaðsrannsókna hjá Gallup. Ljósmynd/Ólafur Már Svavarsson

Empower, Viðskiptaráð, Gallup og Háskóli Íslands kynntu í dag samstarfsverkefnið „Kynin og vinnustaðurinn“. Árlega verður gerð könnun á stöðu, upplifun og líðan starfsfólks í fyrirtækjum á Íslandi þar sem sérstaklega er horft til þess hvort greina megi mun eftir kyni. 

Greint er frá þessu í tilkynningu.

Þar segir að lagðar verði spurningar fyrir starfsfólk í um 200 fyrirtækjum sem eiga aðild að Viðskiptaráði. Einnig verður staða kynjanna í stjórnunarlögum fyrirtækjanna tekin saman til þess að miðla því hvort og þá hvernig halli á eftir kynjum.

„Með niðurstöðum könnunarinnar verður hægt að fá vísbendingu um það hvort kyn skipti máli í menningu og þá með hvaða hætti ójafnrétti kynja birtist. Með betri upplýsingum og vel skilgreindum viðmiðum eru meiri líkur á því að stjórnendur geti metið hvort ástæða sé til að grípa til aðgerða til að bæta stöðu kynjanna innan síns fyrirtækis.   Niðurstöðurnar ættu því að nýtast öllu atvinnulífinu og samstarfaðilar vonast til þess að verkefnið verði hreyfiafl til jákvæðrar þróunar í jafnréttismálum,“ kemur fram í tilkynningunni.

Niðurstöuðrnar verða kynntar á opnum fundi í maí.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert